Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2020

Skipulagsmál

""

Óskað eftir hugmyndum og ábendingum.

Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst, eða sem næst þeim degi, ár hvert eru veittar viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar. Auk þess eru veittar viðurkenningar fyrir vel útfærð svæði fyrir utan verslanir við „sumargötur“, þ.e. götur sem eru göngugötur á sumrin.

Óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningu í ár. Valið verður í höndum vinnuhóps sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og Borgarsögusafni.

Hugmyndir skulu sendar inn með tölvupósti merktum Fegrunarviðurkenningar 2020 á skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi þann 17. júlí 2020.

Sagan á bak við viðurkenningarnar

Fegrunarnefnd Reykjavíkurborgar var skipuð í maí árið 1968. Eftirtalin félagssamtök áttu fulltrúa í nefndinni: Arkitektafélag Íslands, Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands og Húseigendafélag Reykjavíkur. Af hálfu borgarinnar voru skipaðir í fegrunarnefnd þeir Hafliði Jónsson, þáverandi garðyrkjustjóri í Reykjavík, Gísli B. Björnsson, grafískur hönnuður og Gunnar Helgason, borgarfulltrúi sem var hvatamaður að stofnun fegrunarnefndar.

Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst árið 1968 valdi Fegrunarnefndin í fyrsta sinn fegurstu götu Reykjavíkurborgar og varð Safamýri fyrir valinu. Margar fleiri götur í Reykjavík þóttu til sóma fyrir útlit borgarinnar t.d. Einimelur, Hvassaleiti, Kleifarvegur og Sporðagrunnur.

Árlega upp frá því hafa fegrunarviðurkenningar verið afhentar fyrir falleg hús og lóðir í Reykjavík á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18 ágúst.

Tengill

Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar