70 reykvískir nemendur fá Íslenskuverðlaun unga fólksins

Skóli og frístund

""

Íslenskuverðlaun unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík eru afhent í dag, á Degi íslenskrar tungu.

Að þessu sinni fá um 70 nemendur í 34 grunnskólum borgarinnar þessa viðurkenningu og hafa aldrei verið fleiri. Meðal verðlaunahafa eru áhugasamir lestrarhestar, framúrskarandi upplesarar, nemendur með annað móðurmál en íslensku sem náð hafa góðum tökum á íslensku á skömmum tíma, sagnahöfundar og ljóðskáld.

Verndari Íslenskuverðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og hefur hún oftast verið viðstödd afhendingu þeirra við hátíðlega athöfn í Hörpu. Að þessu sinni er verðlaunaafhendingin með breyttu sniði og verða þau afhent tilnefndum nemendum í hverjum skóla fyrir sig .

Einnig verður sýnt myndband í skólunum með stuttum ávörpum Skúla Helgasonar formanns skóla- og frístundaráðs, Mörtu Guðjónsdóttur, formanns nefndar um verðlaunin og Vigdísar Finnbogadóttur. Í lok myndbandsins er textinn Á íslensku má alltaf finna svar, með undirleik svo syngja megi einkunnarlag verðlaunanna.

Allir verðlaunahafarnir fá viðurkenningarskjal og bókina Ljóðaúrval með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar í samantekt Böðvars Guðmundssonar.

Þetta er í fjórtánda sinn sem Íslenskuverðlaunin eru afhent en þau eru á vegum skóla- og frístundráðs Reykjavíkurborgar í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Íslenskuverðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli.

Eftirtaldir grunnskólanemendur fá Íslenskuverðlaun unga fólksins 2020:

Austurbæjarskóli

Jóhann Ástráðsson

Salka Björt Björnsdóttir

Unnur Efemía Ragnarsdóttir

Álftamýrarskóli

Yeabsira Tesfaye Assefa

Árbæjarskóli

Elín Elmarsdóttir van Pelt

Hekla Dís O‘Shea

Gunnar Andri Stefánsson

Ártúnsskóli

Valdimar Ísfeld Snæbjörnsson

Borgaskóli

Haukur Leó Kristínarson

Tómas Aris Dimitropoulos

Breiðagerðisskóli

Heiðrún Lóa Jónsdóttir

Breiðholtsskóli

Júlía Wolkowicz

Rannveig Lovísa Guðmundsdóttir

Dalskóli

Ísabella Elínborg Cecchini

Jökull Fannar Claessen

Sóldís Rós Ragnarsdóttir

Engjaskóli

Eiríka Malaika Stefánsdóttir

Valdís Eva Eiríksdóttir

Fellaskóli

Gabriela Fominych

Lena Barbara Jackiewicz

Qiyuan Tan

Foldaskóli

Brynhildur Björk Teitsdóttir

Davíð Goði Jóhannsson

Guðrún Ásgeirsdóttir

Fossvogsskóli

Anna Vigdís Th. Agnarsdóttir

Fríða María Ásbergsdóttir

Hamraskóli

Anna Hrefna Jóhannesdóttir

Þórarinn Hallbjarnarson

Háteigsskóli

Cicely Steinunn Pálsdóttir

Hlíðaskóli

Hrönn Falksdóttir Krueger

Jónatan Vignir Guigay

Hólabrekkuskóli

Lárus Guðni Svafarsson

Lorenzo Carl Lumawag

Paulina Anna Karmel

Húsaskóli

Cumali Yigit Sarpkaya

Freyr Magnússon

Hvassaleitisskóli

Hrafnhildur Markúsdóttir

Ingunnarskóli

Hjalti Tómas Gunnarsson

Hrannar Andri Zoega

Klébergsskóli

Hekla Sif Þráinsdóttir

Isabella Ósk Jónsdóttir

Landakotsskóli

Alice Freya Mckeown

Karl Noah Macalle Bondalo

Þorvaldur Wilhelm Sigurbjörnsson

Langholtsskóli

Dagný Huang Huynh

Sunneva Kristín Guðjónsdóttir

Stefán Geir Hermannsson

Laugalækjarskóli

Kristjana Rebecca Rardon

Sólveig Ágústa Aradóttir

Laugarnesskóli

Alma Júlía Hjaltadóttir

Laufey Lilja Leifsdóttir

Melaskóli

Skær Sindrason

Norðlingaskóli

Embla Margrét Hreimsdóttir

Karen Dís Vigfúsdóttir

Svala Sæmundsen

Rimaskóli

Ína Julia Nikolov

Kristín Rúna Sturludóttir

Sóley Kría Helgadóttir

Selásskóli

Egill Ási Arnarsson

Seljaskóli

Adam Ingi Grétarsson

Hrafndís Hanna Halldórsdóttir

Ísabella Sól Lúðvíksdóttir

Sæmundarskóli

Eldey Myrra Karlsdóttir

Peta Guðrún Hjartardóttir

Matthildur Birta Sverrisdóttir

Tjarnarskóli

Árni Kristinn Hilmarsson

Víkurskóli

Sigurður Steinsson

Vogaskóli

Daria Maria Sandi

Ölduselsskóli

Guðmundur Kristinn Davíðsson

Lukas Danupas

Olivier Kaczmarek