Verslun Bláa Lónsins hlýtur Njarðarskjöldinn 2018

Menning og listir Mannlíf

""

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, veitti hvatningarverðlaunin Njarðarskjöldinn 2018 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, síðdegis í dag.

Dómnefnd lagði mat á verslanir sem voru tilnefndar til verðlaunanna. Horft er  til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing og þekking á söluvörunum.

Verslun Bláa Lónsins hlaut Njarðarskjöldinn 2018 fyrir stílhreina verslun og faglega þjónustu.  Í niðurstöðu dómnefndar segir að verslunin sé hlýleg björt og fallega uppsett. Glæsileg hönnun í hvívetna og útstillingar einkennandi fyrir vörumerkið. Þjónustan beri af og vakti sérstaka athygli dómnefndar – starfsfólkið er allt í senn metnaðarfullt  og faglegt í framkomu og sýni frumkvæði.

„Það er einfaldlega einstök upplifun að koma inn í verslun Bláa lónsins á Laugavegi“.

Verslunin Geysir Heima hlýtur Freyjusómann 2018

Freyjusómi er veittur þeirri verslun sem sem þykir koma með ferskan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni fyrir árið 2017.

Verslunin Geysir Heima fær Freyjusómann 2018 fyrir að koma með ferskan andblæ í rótgróna  verslunarflóru Skólavörðustígsins.

Í umsögn dómnefndar segir að starfsfólkið veiti afslappaða en faglega þjónustu í bjartri og fallegri verslun þar sem natnin við smáatriðin er augljós. Blanda af eldri innréttingum og nýjum stílhreinum vörum gefi versluninni heildstætt, ferskt og tímalaust útlit sem rímar vel við ímynd fyrirtækisins..

„Það er eins og að ganga inn í annan og bjartari heim þegar komið er inn í Geysi Heima“.

Þórdís Lóa sagði í ræðu sinni að miðja miðborgarinnar teygðist alla leið frá Hlemmi og út á Granda með góðri blöndu af íbúðabyggð, verslunum, veitingahúsum, vinnustöðum og menningarhúsum á eina og sama punktinum sem tryggir iðandi mannlíf í borginni á öllum tímum dags. „Sú fjölbreytta verslun og þjónusta sem hægt er að sækja í miðborgina ber vitnisburð um þann metnað og dugnað sem einkennir verslunareigendur í miðbæ Reykjavíkur“.

Að hvatningarverðlaununum standa Tax Free fyrirtækin Global blue, Planet Payment Island og Iceland Taxfree ásamt Samtökum verslunar og þjónustu, Félagi atvinnurekanda, Miðborgin okkar og Reykjavíkurborg.