Í sumar verður hægt í undantekningartilvikum að sækja um vistun í opnum leikskóla á meðan leikskóli barns er lokaður.
Öll börn í leikskólum Reykjavíkur skulu taka að minnsta kosti 20 virka daga samfleytt í sumarleyfi á sumarleyfistíma. Eins og undanfarin ár munu leikskólar borgarinnar loka í 4 vikur yfir sumarið en í sumar verður hægt að sækja um vistun í opnum leikskóla.
Skóla- og frístundasvið leggur áherslu á þá meginreglu að foreldrar/forsjáraðilar taki sumarleyfi með börnum sínum á þeim tíma sem leikskólar þeirra loka. Í undantekningartilvikum, þegar foreldrar eiga þess ekki kost að taka sumarleyfi á sama tíma og leikskóli barnsins er hægt að sækja um að barnið fari í sumarleyfi á öðrum tíma og sæki þá leikskóla sem bjóða upp á sumaropnun í tilraunaskyni sumarið 2019.
Einn starfsmaður úr leikskóla barnsins mun fara með börnunum sem flytjast í opna leikskólann og vera í þeim leikskóla á meðan barn/börn eru þar.Flutningur á milli leikskóla getur verið börnum erfiður þótt leitast verði við að starfsmaður sem fylgi barninu þekki það vel.
Umsókn um vistun í opna leikskólann skal skila til leikskólastjóra heimaleikskóla barns í síðasta lagi 15. mars nk. og er umsóknin bindandi.
Ef ekki er sótt um vistun í opinn leikskóla er litið svo á að barn muni fara í sumarleyfi á þeim tíma sem leikskóli þess lokar.