Kynlegum tölum á vef Reykjavíkurborgar er ætlað að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla og eru þær birtar árlega. Samantektin er unnin af mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Í samantektinni Í ár er lögð áhersla á velferðarmál og samgöngur auk þess sem sjónum er beint að atvinnulífinu.
Aðeins 17 konur keyra strætisvagna Strætó BS en 181 karl árið 2019. 7.199 konur eiga strætókort á kennitölu en 5.889 karlar. 60,5% skráðra eigenda fólksbifreiða í Reykjavík eru karlar.
Í umferðarslysum á Íslandi 2018 létust 13 karlar og 6 konur. Þar af voru það 5 erlendir karlar sem létust og 8 íslenskir karlar. Í hópi kvenna sem létust í umferðarslysum voru 4 erlendar konur og 2 íslenskar konur.
Drengir eru í meirihluta þeirra sem dvöldu í skammtímavistun á vegum Reykjavíkurborgar árið 2018, þeir voru 103 en stúlkur 50. Karlar eru líka í meirihluta íbúa sértækra búsetuúrræða fyrir fólk með þroskahömlun á vegum Reykjavíkurborgar. Af 248 íbúum eru karlar 145 talsins en konur 103.
Fjölskyldusamsetning/fjölskyldugerðir í Reykjavík hefur lítið breyst frá árinu 1999 nema fyrir þær sakir að einstaklingum hefur fjölgað talsvert eða úr 36.906 árið 1999 í 50.690 árið 2019 sem er 37% aukning. Karlar með börn eru enn þá mun færri en konur með börn en þeir eru 513 talsins en konur með börn 4.520. Karlar sem gengu undir ófrjósemisgerð voru 127 árið 1996 en 2016 gengu 508 karlar undir þessa aðgerð sem eru 300% aukning/þreföldun
Á milli 2016 og 2017 fjölgaði trans körlum sem leituðu til trans teymis Landspítala úr 15 í 27 einstaklinga. Á sama tíma fjölgaði trans konum úr 18 í 23.
Hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu störfuðu 72 konur sem lögregluþjónar hjá árið 2017 en 235 karlar.
Embætti formanns Stúdentaráðs Háskóla Íslands var gegnt af 55 körlum og engri konu frá 1920-1973 en frá 1974-2019 hafa 14 konur gegnt embættinu og 31 karl. Öllum fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands árið 2019 er stýrt af körlum.
Þessar og fleiri upplýsingar er að finna í Kynlegum tölum 2019