Innköllun á vatnsdeigsbollum frá Myllunni

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á vatnsdeigsbollum frá Myllunni vegna ómerkts ofnæmis- eða óþolsvalds (mjólk).

Myllan hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað vatnsdeigsbollur (6 stk. pakkningar) og vatnsdeigsbollur litlar (6 stk. pakkningar)Vegna mistaka var hluti framleiðslunnar merktur með gömlum límmiðum sem ekki tilgreina í listum yfir innihaldsefni að vörurnar innihaldi afurð úr mjólk.



Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:



Vörumerki: Myllan.

Vöruheiti: Vatnsdeigsbollur 6 stk. og Vatnsdeigsbollur litlar 6 stk.

Strikanúmer: 5690568022672 og 5690568022696.

Best fyrir: 04.03.2019.

Framleiðandi: Myllan, Skeifunni 19, 108 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir um land allt.



Mjólk og mjólkurafurðir eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni á að merkja ofnæmis- eða óþolsvalda með skýrum hætti á umbúðum matvæla.



Viðskiptavinir sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk og mjólkurafurðum er bent á að neyta vörunnar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.  Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir mjólk og mjólkurafurðum.