Endurheimt votlendis hafin

Umhverfi Framkvæmdir

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur tók fyrstu skóflustunguna að endurheimt votlendis í Úlfarsárdal í gær. Áætlað er að verkefnið í heild bindi um 400 tonn af kolefni í jörðu sem nemur meðalakstri um 150 bíla á ári. 

Borgarráð samþykkti í marsmánuði að endurheimta votlendi á 87 hektara svæði í Úlfarsárdal í þeim tilgang að binda kolefni í jörðu.

Svæðið sem um ræðir er á norðurbakka Úlfarsár frá sveitarfélagamörkum við Mosfellsbæ í austri að vegi niður að Víðimýri í vestri. Í fyrsta áfanga verkefnisins verður 12 hektara svæði næst sveitarfélagamörkum við Mosfellsbæ tekið fyrir.

Aðgerðir þar felast í að fjarlægja rusl og girðingar af svæðinu, mokað verður ofan í þverskurði og mótaðar tjarnir. Þess er vænst að með aðgerðunum aukist líffræðileg fjölbreytni bæði hvað varðar gróður og dýralíf, þá sérstaklega fuglalíf. Svæðið verður vaktað af umhverfis- og skipulagssviði en vöktun er mikilvægur hluti af endurheimt og viðhaldi votlendissvæða.

Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 – 2030 er stefnt að endurheimt votlendis í Úlfarsárdal en slík endurheimt er mikilvæg aðgerð í baráttunni við loftslagsbreytingar þar sem töluverð losun gróðurhúsalofttegunda er úr framræstu votlendi og með endurheimt þess má minnka þá losun til muna.

Undirbúningur að verkefninu í Úlfarsárdal hefur verið unnin í samstarfi við Landgræðslu ríkisins sem leggur mat á áhrif framkvæmda með tilliti til bindingar kolefnis.

Kostnaðaráætlun við 1. áfanga verkefnisins hljóðar upp á 20 milljónir króna en samkvæmt fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2019 – 2023 er gert ráð fyrir 30 milljónum á ári í verkefni sem snúast um að bæta líffræðilega fjölbreytni og að endurheimta votlendi í landi borgarinnar eða samtals 150 milljónum króna.

Áætlaður framkvæmdatími er frá lok apríl fram í miðjan maí í ár 2019.