Breytingar á aðkomu að Landspítala

Samgöngur Umhverfi

""

Nú í byrjun apríl verða breytingar á aðkomuleiðum að Landspítala við Hringbraut og vegur þar þyngst að ekki verður lengur hægt að aka um Gömlu-Hringbraut frá Snorrabraut.

Gert hefur verið greinargott útskýringarvídeó fyrir þá sem eiga erindi á spítalann.

  • Vegna framkvæmda við aðalinngang spítalans er vakin athygli á inngangi Eiríksgötumegin.
  • Aðkoma og inngangur að kvennadeildinni er sá sami. Akandi koma frá Barónsstíg.
  • Aðkoma að K-byggingu og að rannsóknarstofum fyrir sýnamótttökur helst óbreytt að öðru leyti.

Bílastæði fyrir sjúklinga og aðstandendur í kringum spítalann hafa verið stækkuð.

Þá tekur aðkoma að Barnaspítalanum breytingum á næstunni. Fyrst um sinn verður aðkoma að Barnaspítalanum möguleg frá Eiríksgötu í gegnum bílastæði spítalans. Um miðjan apríl mun aðkoma að Barnaspítalanum breytast og verður frá Laufásvegi.