Agnes Jónsdóttir ráðin leikskólastjóri á Funaborg.
Agnes útskrifaðist 2003 með B.Ed í leikskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og hefur áratuga starfsreynslu í leikskóla sem leiðbeinandi, leikskólakennari, deildarstjóri og nú síðustu 7 ár sem aðstoðarleikskólastjóri í Funaborg og síðar Sunnufold. Agnes tekur við starfi leikskólastjóra 1. júní n.k.