Yasuhiro Suzuki sýnir í Grófinni

Menning og listir

""

Yasuhiro Suzuki sýnir í Borgarbókasafninu í Grófinni. Opnun verður föstudaginn 9. mars klukkan fjögur en sýningin stendur til 18. mars.

Yasuhiro Suzuki sýnir Aerial Being, skúlptúrverk úr viðsjálu lofti. Loft er óvenjulegur efniviður þar sem tilvist þess er dregin í efa, enda er það ósýnilegt. En í verki Suzukis skilur loftið eftir svo skugga í huga þess sem ber það augum. 

Yasuhiro Suzuki fæddist árið 1979 í Japan. Hann útskrifaðist frá hönnunardeild Zokei-háskólans í Tókíó árið 2001 og gegnir prófessorsstöðu í teikningu og fatahönnun við Musashino listaháskólann. Hann sinnir jafnframt rannsóknum við rannsóknarsetur fyrir nýjustu tækni og vísindi í Tókíó. Með því að beina sjónum sínum að óvæntum uppákomum hversdagsleikans minnir  hann okkur á eigin minningar og stuðlar þannig að aukinni samkennd okkar allra. Auk þess að taka þátt í sýningum bæði í heimalandi sínu og utan þess fæst hann við viðfangsefni í almenningsrými sem hann vinnur í samstarfi við fyrirtæki og háskóla.

Meðal helstu einkasýninga hans má nefna Neighborhood Globe í samtímalistamiðstöð Art Tower í Mito árið 2014. Hann hlaut Mainichi hönnunarverðlaunin 2014.