Tillaga um göngugötur í miðborginni mótuð í vetur

Samgöngur Skipulagsmál

""

Tímabili göngugatna í miðborg Reykjavíkur lýkur 1. október næstkomandi og verður þá um leið opnað aftur fyrir umferð bifreiða. Tillaga um varanlegar göngugötur verður mótuð í vetur og mun liggja fyrir í vor.

Umhverfis- og skipulagssviði var nýlega falið af borgarráði að útfæra tillögur að göngugötum til framtíðar á völdum svæðum í miðborginni.

Sviðinu var einnig falið að útfæra endurhönnun göngusvæða með tilliti til öryggis og vellíðunar gangandi vegfarenda og vandaðrar borgarhönnunar. Algild hönnun með aðgengi fyrir alla verður höfð að leiðarljósi við útfærsluna í samráði við notendur og viðeigandi hagsmunasamtök.

Starfsfólk sviðsins hefur hafist handa við þetta verkefni. Tímaáætlun er í mótun og einnig uppsetning upplýsingasíðu um verkefnið. Í samráðsferli gefst hagsmunaaðilum kostur á að taka þátt í hönnunarferlinu. Hönnunin mun taka mið af bættu aðgengi inn í verslanir, þar sem því verður við komið. Samhliða verður unnið deiliskipulag fyrir þær göngugötur sem verða til framtíðar. Gert er ráð fyrir að ferlið standi yfir til vors. Boðað verður til funda um verkefnið til að safna hugmyndum um útfærslur.

Aðlaðandi ásýnd

Göturnar fá nýja og aðlaðandi ásýnd með þessari endurhönnun þar sem gert er ráð fyrir gróðri, dvalarsvæðum, lýsingu og betrumbættu yfirborði. Tekið verður tillit til vörulosunar og annarra þátta. Þá verður hugað að útiveitinga- og markaðssvæði á þessum götum, sögulegum tengingum og ýmsu öðru sem göngugöturnar bjóða upp á.

Næstu skref

Markmiðið með göngugötum er fyrst og fremst að efla miðborgina, auka vellíðan vegfarenda og bæta aðgengi að verslun og þjónustu. Opnunarfundur þessa verkefnis verður haldinn í október. Á tímabilinu verða þrír vinnustofufundir haldnir.

Gert er ráð fyrir að fullmótuð tillaga liggi fyrir í vor.