RIFF, alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst í dag 27. september. Klukkan 19:00 í kvöld verður Donbass eftir Sergei Loznitsa frumsýnd í Bíó Paradís. Að því loknu hefst opnunarteitið í Iðnó klukkan 21:00 þar sem menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mun veita Loznitsa heiðursverðlaun RIFF.
RIFF er að evrópufrumsýna og norðurlandafrumsýna margar myndir á hátíðinni en henni lýkur 7. október.
Margar eru sjóðheitar frá vor- og hausthátíðunum í Cannes, Toronto og Feneyjum. Flokkurinn Vitranir er stolt hátíðarinnar en þar keppa níu leikstjórar með sínar myndir um aðalverðlaunin, Gullna lundann.
En auk þess er Sixties sviðið í New York á áhugasviði RIFF þannig eru myndir eftir snillinginn Jonas Mekas en ein myndanna fjallar um vin hans Andy Warhol, önnur um annan vin hans John Lennon og enn önnur um gjörningalistamanninn George Maciunas auk þess verða á hátíðinni nokkrar aðrar myndir tengdar þessu magnaða tímabili í listsköpun í Bandaríkjunum eins og heimildarmynd um Stúdíó 54.
Svo verða ljúfar heimildarmyndir eins og hin heillandi Carmine Street Guitars þar sem við kynnumst sölumanni gítartónlistarinnar, manni sem hefur helgað líf sitt góðum gítörum.
Myndin Nothing like a Dame er jafn ljúf þar sem dömurnar Eileen Atkins, Judi Dench, Joan Plowright og Maggie Smith hleypa kvikmyndagerðarmönnum inn í líf sitt til að skrásetja vináttu þeirra. Minding the gap er enn ein fallega myndin um vináttu ungs fólks sem hefur ástríðu fyrir brimbrettum. Að ekki sé talað um hina stórkostlegu ævintýramynd frá Indlandi, Tumbbad.
Allir ættu að finna bíómynd við hæfi. Dagskrá RIFF