Forvarnardagur helgaður rafrettum og lyfjanotkun

""

Forvarnardagurinn, sem verður miðvikudaginn 3. október, var kynntur formlega í  Réttarholtsskóla í dag. Auk borgarstjóra mættu forseti Íslands, landlæknir og fulltrúar þeirra samtaka og stofnana sem hafa staðið að deginum. Skólastjóri og nemendur úr 9. bekk Réttarholtsskóla tóku vel á móti sendiherrum forvarna.

Forvarnardagurinn er í ár helgaður rafrettum og lyfjanotkun. Notkun rafretta hefur færst í vöxt meðal íslenskra unglinga og veldur þessi aukna neysla áhyggjum þar sem ekki er vitað um áhrif þess á heilsu til lengri tíma. Rannsóknir sýna að þeir sem nota rafrettur eru mun líklegri en aðrir til að byrja að nota venjulegar og hættulegri sígarettur. 

Flestir hafa orðið varir við fjölmiðlaumræðu um lyfjamisnotkun. Margir hafa misst lífið vegna slíkrar misnotkunar og er nú orðið mjög aðkallandi að sporna gegn þessari vá. Unglingar þurfa að vita að það getur verið lífshættulegt að taka inn einhverjar tilfallandi lyf sem ætluð eru öðrum.

Forseti Íslands, borgarstjóri, forsvarsmenn fjöldahreyfinganna og aðrir fulltrúar þeirra sem að deginum standa munu á miðvikudaginn heimsækja skóla víða um land og ræða við nemendur í 9. bekkjum um vandamál og hættur sem fylgja notkun áfengis og annarra vímuefna.

Fyrir liggur að þeir sem þeir sem byrja mjög ungir að nota áfengi eða önnur vímuefni eru í margfalt meiri hættu á að misnota þessi efni, en þeir sem byrja síðar eða sleppa því alfarið. Því lengur sem menn draga að bragða áfengi, þeim mun líklegra er að þeir kunni að nota það í hófi á fullorðinsaldri.

Á Forvarnardaginn ræða nemendur í skólunum um hugmyndir sínar og tillögur um æskulýðs- og íþróttastarf, fjölskyldulíf sem sem hafa sýnt sig að eru mest verndandi þættir þegar kemur að forvörnum. Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í ljósmyndasamkeppni á Instagram sem kynnt verður á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #forvarnardagur18

Það er landlæknisembættið sem stendur að deginum að þessu sinni en þegar hafa forseti Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátarnir, Ungmennafélag Íslands, Félag framhaldsskóla, Rannsóknir og greining og Samband íslenskra sveitarfélaga staðið fyrir þessu verkefni með stuðningi einkafyrirtækja.