Slæmt veður gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið sem gæti valdið röskun á skólastarfi í upphafi skóladags, sérstaklega í efri byggðum borgarinnar.
Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með fréttum og veðri og fylgja yngri börnum en tólf ára í skóla.
Skólar eru opnir og starfsemi þeirra verður með venjubundnum hætti, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skólann, sérstaklega í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skólann.
Sjá tilmæli á vef Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Búist er við að veðrið gangi niður undir hádegi.
Enska
In the morning because of bad weather.
Due to weather conditions, disruptions in school services may be expected today. Schools are open but parents and guardians are asked to escort children younger than 12 years to school. This especially concerns children living in upper areas that need to cross open spaces on their way to school.
Further information on Facebook („Slökkvilið and lögreglu höfuðborgarsvæðisins“)