Vöxtur og vaxtarverkir á Öskudagsráðstefnu

Skóli og frístund

""

Sex hundruð reykvískir grunnskólakennarar eru skráðir til leiks á ráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica hóteli á Öskudag, þar sem fjallað verður um hvernig fjölbreytt nám stuðlar að vexti allra nemenda.  

Yfirskrift ráðstefnunnar er Vöxtur og vaxtarverkir og er aðalfyrirlesari breska fræðikonan Shirley Clarke. Hún hefur  stundað rannsóknir og skrifað fjölmargar bækur um kennslu og leiðir til að virkja nemandann til að stjórna eigin námi, m.a. með leiðsagnarmati (formative assessment). Bækur hennar hafa notið mikilla vinsælda meðal kennara og námskeið hennar eru afar vel sótt og þykja hagnýt. Shirley Clarke er heiðursdoktor við Háskólinn í Greenwich .

Að loknum aðalfyrirlestri verða fimm málstofur í boði þar sem fjallað verður um vendikennslu, tækni og miðlun í kennslustofunni, lestraráhuga, nýja nálgun í kennslu unglinga og sjálfsmynd nemenda.

Á Öskudagsráðstefnunni verða einnig afhent hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs  fyrir framsækið grunnskólastarf og minningarverðlaun Arthurs Morthens fyrir störf í þágu stefnu um skóla án aðgreiningar. Er þetta í fyrsta skipti sem þau verðlaun eru veitt.  

Öskudagsráðstefnan er fastur liður í faglegu starfi reykvískra kennara og einn stærsti  fagvettvangur skólafólks á landinu. Hún er skipulögð af skóla- og frístundasviði í samstarfi við Kennarafélag Reykjavíkur og Skólastjórafélag Reykjavíkur.