Á sjötta hundrað eru skráðir á ráðstefnu starfsfólks leikskóla sem haldin verður föstudaginn 3. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica.
Megináhersla ráðstefnunnar er umfjöllun um nám barna í leik og sjónarmið barna og ber heitið; „Valið er skemmtilegast þá fáum við að ráða hvað við leikum“.
Ráðstefnan er stærsta fagstefna leikskólastarfsfólks á landinu og er haldin í samstarfi skóla- og frístundasviðs, Háskóla Íslands, Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum. Áætlaður fjöldi þátttakenda er um 550 manns.
Aðalfyrirlesarar verða Sara Margrét Ólafsdóttir, doktorsnemi og Dr. Kristín Norðdahl, dósent við Menntavísindasvið HÍ. Erindi Söru Margrétar fjallar um leik barna og heitir „Þeir vilja ekki leika, bara tala saman“ – Viðhorf barna til leiks og hlutverk fullorðinna í leik en erindi Kristínar fjallar um hlutverk útiumhverfis á menntun barna út frá sjónarhorni barna og kennara.
Einnig verða erindi frá tveimur leikskólum; Klara S. Kristjánsdóttir og Sigríður Jóna Clausen munu segja frá verkefni sem unnið er í leikskólanum Laufskálum og fjallar um leiklist í gegnum leik og Ingibjörg Jónasdóttir og Dagbjört Svava Jónsdóttir í leikskólanum Rauðhóli munu fjalla um reynslu síns skóla af útikennslu.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri mun ávarpa ráðstefnugesti og kynna mótun nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar. Ráðstefnan hefst kl. 12.45.
Sjá dagskrá