Sýningaropnun – Ragnar Kjartansson: Guð, hvað mér líður illa

Mannlíf Menning og listir

""

Listasafn Reykjavíkur er stolt af að bjóða upp á þessa yfirgripsmiklu sýningu, Guð, hvað mér líður illa. Sýningin er fyrsta safnsýning Ragnars Kjartanssonar á heimavelli eftir sigurför á erlendri grundu á undanförnum árum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýninguna.

Hafnarhúsið verður undirlagt verkum Ragnars (f. 1976) og sýningin endurspeglar óð hans til listarinnar í allri sinni dýrð – til tónlistar, leikhúss, kvikmynda, bókmennta og, að sjálfsögðu, myndlistar. Hylling listamannsins birtist í völdum verkum, frá árinu 2004 til dagsins í dag; lifandi gjörningum, stórum myndbandsinnsetningum, ljósmyndum, höggmyndum, málverkum og teikningum.

Ragnar notar gjarnan leikræn tilþrif og sviðsetningu í verkum sínum og flakkar auðveldlega á milli ólíkra listforma – gerir tónlistina að höggmynd, málverkið að gjörningi og kvikmyndina að uppstillingu. Rauði þráðurinn er alltaf gaumgæfileg athugun á mannlegu eðli, marglaga tilfinningum, félagslegum víddum og hinum mótsagnakenndu þáttum sem líf okkar allra samanstendur af.

Vegleg bók um listamanninn kemur út á íslensku í tengslum við sýninguna. Bókin er gefin út í samstarfi við Koenig bókaforlagið og var fyrst gefin út samhliða sýningu Ragnars í Barbican safninu í London á síðasta ári.

GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar og þakkar Listasafn Reykjavíkur fyrir samstarfið.

Nánar