Fyrstu stórtónleikar á vegum Skólahljómsveitar Grafarvogs á skólaárinu voru haldnir laugardaginn 28. október í Langholtskirkju, í samvinnu við Barnakór Grafarvogskirkju og Barnakór Guðríðarkirkju.
Mikið var um dýrðir þegar frumfluttar voru margar nýjar útsetningar sem sérstaklega voru gerðar fyrir flutning hljómsveitarinnar með þessum barnakórum hverfisins. Sérstaka athygli vöktu tvær útsetningar hins 13 ára gamla Gunnars Guðmundssonar af Sautján þúsund Sólargeislar eftir Kristjönu Stefánsdóttur við texta Bergs Þórs Ingólfssonar og Orðin mín, lag og texti eftir Braga Valdimar Skúlason.
Þessir tónleikar voru fyrstu hljómsveitartónleikarnir af þremur sem haldnir verða í vetur í tilefni af 25 ára afmæli Skólahljómsveitar Grafarvogs.
Kynnir á tónleikunum var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, sem rifjaði meðal annars upp þátttöku sína í skólahljómsveit á sínum tíma og taldi töffaraskap í lagavali hafa aukist mjög verulega.
Gleði og stolt barna og tónleikagesta var ósvikin og struku nokkrir af eldri kynslóðinni tár af hvarmi í lok tónleikanna.
Stjórnandi Barnakórs Grafarvogskirkju er Sigríður Soffía Hafliðadóttir.
Stjórnandi Barnakórs Guðríðarkirkju er Svanhildur Hlín Gunnarsdóttir.
Tónsprota stýrðu þeir Kristjón Daðason, Elvar Bragi Kristjónsson og Einar Jónsson, stjórnandi hljómsveitarinnar.