Alls fengu 25 verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans í gær en hægt verður að sjá afrakstur þeirra á Menningarnótt þann 19. ágúst. Veittir voru styrkir á bilinu 100-350 þúsund kr. til einstaklinga og hópa, samtals fjórar milljónir kr.
Starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu valdi styrkþegana úr hópi 70 umsókna en þetta er í áttunda skipti sem veitt er úr Menningarnæturpottinum. Við úthlutunina var lögð áhersla á að styðja skemmtilega og frumlega viðburði. Áherslusvæðið í ár er Hlemmur og þar í kring og var tekið tillit til þess í styrkveitingunni. Svæðið hefur verið að byggjast hratt upp síðustu misseri og verður Hlemmur Mathöll t.d. opnuð þar á næstu dögum þar sem 10 veitingastaðir og kaupmenn bjóða upp á alls kyns kræsingar.Um er að ræða samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi. Landsbankinn mun til viðbótar við styrkina standa fyrir árvissri dagskrá í útibúi sínu í Austurstræti á Menningarnótt.
Um Menningarnótt 2017
Menningarnótt verður haldin í 22. skipti laugardaginn 19. ágúst. Þá fylla stórir og smáir viðburðir götur og torg miðborgarinnar, húsasund, garða, gallerí, verslanir, menningarstofnanir og heimahús. Í lok Menningarnætur verður að vanda glæsileg flugeldasýning í boði Reykjavíkurborgar. Hlemmur og svæðið þar í kring er áherslusvæði Menningarnætur í ár en jafnframt er vakin sérstök athygli á torginu við Veröld – húsi Vigdísar en það verður vígt á setningu Menningarnætur þann 19. ágúst kl. 12.30.
Akranes er gestabær Menningarnætur og býður fólki upp á dagskrá á veitingastaðnum Messanum í Sjóminjasafninu þar sem listamenn af Skaganum koma fram.
Menningarnótt er þátttökuhátíð sem byggir á framlagi fjölda aðila sem standa að menningarlífi í borginni og annarra sem nota þetta tækifæri til að setja svip sinn á borgarlífið. Markmið hátíðarinnar er að vekja athygli á því fjölbreytta menningarlífi sem á sér stað í borginni og hvetja borgarbúa til þátttöku.
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á framkvæmd hátíðarinnar og heldur utan um skipulag, viðburði og stendur að kynningu á viðburðum hátíðarinnar. Menningar–og liststofnanir, félagasamtök, fyrirtæki, listamenn og íbúar standa að viðburðum á Menningarnótt. Fjölmargir aðrir styðja einnig hátíðina með ýmsum hætti.