Vetrarhátíð 2017 verður sett með afhjúpun ljósalistaverksins Sköpun lands, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 19.40 við Hallgrímskirkju. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur hátíðina. Ljóshestareið frá Hestamannafélaginu Fáki fer frá Hallgrímskirkju eftir setninguna.
Fjögurra daga glæsileg Vetrarhátíð verður haldin frá 2. – 5. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þetta er í 16. sinn sem þessi hátíð ljóss og myrkurs er haldin en fjórar meginstoðir hennar eru: Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuður og ljósalist ásamt um 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Höfuðborgarstofa hefur yfirumsjón með hátíðinni og eru allir viðburðir á Safnanótt og Sundlauganótt ókeypis. Vetrarhátíð lýkur með myrkvun götuljósa í miðborginni á sunnudaginn 5. febrúar kl. 21-22. Orkusalan er aðalbakhjarl Vetrarhátíðar 2017.
Vetrarhátíð 2017 verður sett með afhjúpun ljósalistaverksins Sköpun lands, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 19.40 við Hallgrímskirkju. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur hátíðina. Ljóshestareið frá Hestamannafélaginu Fáki fer frá Hallgrímskirkju eftir setninguna.
Eldgos á Hallgrímskirkju og ljóshestareið
Verkið Sköpun lands á Hallgrímskirkju er eftir listamanninn Ingvar Björn og er samsett úr myndbrotum frá ýmsum eldgosum hér á landi t.d. í Holuhrauni. Samhliða verður frumflutt hljóðverk eftir Magnús Leif Sveinsson þar sem m.a. lesin eru upp öll stærstu eldgos Íslandssögunnar. Verkið er unnið í samstarfi við í Profilm. Eftir setninguna fer af stað ljóshestareið hesta og ungmenna í Hestamannafélaginu Fáki frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og þaðan niður á Arnarhól. Þar gefst fólki tækifæri á að klappa hestunum og tala við knapanna.
Um listamanninn Ingvar Björn og verkið Sköpun lands
Listamaðurinn Ingvar Björn hefur tekið þátt í sýningum víða um heim. Þá tók hann þátt í Popup - listahátíð í Berlín á síðasta ári þar sem hann gerði náttúrulistaverkið Geysi í miðborginni. Hann gerði verk sem kallast Largest Artwork in the World sem sýnt var í Listasafni Reykjavíkur og hlaut mikla umfjöllun og eftirtekt. Ingvar Björn segir m.a. um verkið Sköpun lands: „Íslensk náttúra og náttúruöfl eru svo gríðarlega öflug og mögnuð og í þessu verki langaði mig að færa þau nær okkur eða í miðborg Reykjavíkur. Náttúran er svo sterk í okkur Íslendingum og við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir hvað við erum rík. Með þessu verki er ég að reyna að leyfa fleirum að njóta hennar.“
Lykilbyggingar í litum norðurljósanna
Á sama tíma og setningin við Hallgrímskirkju fer fram verða á þriðja tug bygginga á höfuðborgarsvæðinu upplýstar í grænum og fjólubláum litum, einkennislitum Vetrarhátíðar. Þá verða ljóslistaverk á nokkrum lykilbyggingum; Hallgrímskirkju, Hörpu, Ráðhúsi Reykjavíkur og Kópavogskirkju. Aðrar upplýstar byggingar eru m.a. Perlan, Háskóli Íslands, Borgarleikhúsið, Stjórnarráðið, Þjóðminjasafnið, Listasafn Íslands, Safnahúsið, Þjóðleikhúsið, Íslensk erfðagreining, Höfði og Menntaskólinn í Reykjavík. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu lýsa upp lykilbyggingar eins og Bessastaði, Lágafellskirkju, Félagsheimilið Hlégarð, Seltjarnarneskirkju, Gróttuvita og Ráðhús og Byggðasafn Hafnarfjarðar. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í þessu samspili ljóss og myrkurs á Vetrarhátíð.