Skóla- og frístundasvið, Félag íslenskra bókútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO ætla að hafa samstarf um að efla lestur barna og ungmenna.
Markmið þessa samstarfs er að efla læsi barna og ungmenna og vekja áhuga þeirra á íslenskum barnabókmenntum. Aukið verður við bókakost skólabókasafna og leikskóla á innlendum barnabókmenntum og verður veitt 7 mkr. viðbótarfjármagni til bókainnkaupa á þessu ári í samræmi við yfirlýsta áhersluþætti um að efla læsi, málþroska, lestrarfærni og lesskilning.
Jafnframt munu útgefendur íslenskra barnabóka halda bókamessu í október þar sem stjórnendum skólasafna og leikskóla í Reykjavík gefst kostur á að kynna sér nýjar bækur, ræða við höfunda og kaupa nýútkomnar barna- og unglingabækur á góðum kjörum.
Rannsóknir hafa sýnt að upplestur fyrir börn og þeirra eigin lestur eflir orðaforða, umskráningu og lesskilning þeirra. Því er góður bókakostur leik- og grunnskóla fyrir alla aldurshópa mikilvægur. Fram kemur í læsisstefnu leikskóla Reykjavíkurborgar, Lesið í leik, að barnabókmenntir eru mikilvægasti liðurinn í almennri málörvun barna á leikskólaaldri. Þá jafna bókmenntir tækifæri barna til náms og eru einn af grundvallarþáttum barnamenningar.
Ein af tillögum Fagráðs um eflingu málþroska, lestrarfærni og lesskilnings í leik- og grunnskólum sem skilaði niðurstöðum árið 2015 sneri að markvissri lestrarkennslu og lestrarþjálfun alla grunnskólagönguna. Því er mikilvægt að nemendur hafi aðgang að lesefni sem samrýmist hæfni þeirra og áhugasviði.