Samráðshópur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um geðheilsuþjónustu borgarbúa leggur til í nýútkominni skýrslu að sett verði á laggirnar tvö ný geðheilsuteymi á höfuðborgarsvæðinu.
Geðheilsuteymin myndu þjóna annars vegar íbúum í vesturhlutaReykjavíkur (Laugardalur, Háaleiti, Miðborg, Hlíðar og Vesturbær) og hins vegar fyrir Kragasvæðið (Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður). Aðalfyrirmyndin er Geðheilsuteymi Breiðholts en samstarf heilsugæslu og Þjónustumiðstöðvar Breiðholts hefur skilað góðum árangri og sýnt fram á mikilvægi slíks samstarfs. Einnig var litið til sambærilegra teyma í Bretlandi.
Samráðshópurinn leggur til að geðheilsuteymi Vestur-Reykjavíkur taki til starfa í janúar 2018 en geðheilsuteymi Kragans ári síðar. Þá er lagt til að í framhaldinu verði komið á geðheilsuteymi á landsvísu í byrjun árs 2020.
Geðheilsuteymi eru þverfagleg teymi 12 -16 heilbrigðisstarfsmanna skipað geðhjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, læknum, félagsráðgjöfum, iðjuþjálfum, fjölskyldumeðferðarfræðingum og heilsuráðgjöfum auk skrifstofufólks.
Hópnum var jafnframt falið að skilgreina vinnu og þjónustu geðheilsuteymanna. Í skýrslu hópsins, sem tilbúin var í byrjun september, er hlutverk geðheilsuteymanna skilgreint og sett fram drög að verklagsreglum með áherslu á þverfaglega vinnu þar sem þarfir notenda eru í fyrirrúmi.. Í skýrslunni leggur samráðshópurinn áherslu á einstaklinga sem glíma við geðrænan vanda og eru 18 ára og eldri, en jafnframt kemur fram að útfæra þurfi þjónustuna þannig að hún nái til yngri hópa.
Svanhvít Jakobsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segja að skýrslan sé nú til skoðunar í samstarfi Heilsugæslunnar og velferðarsviðsog að næsta skref sé að tryggja áframhaldandi efnislega framvindu málsins.
Samráðshópurinn var skipaður í apríl 2017 í framhaldi af ályktun Alþingis 2016 um stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Eitt af aðalmarkmiðum áætlunarinnar var að koma á samþættri og samfelldri þjónustu við einstaklinga með geðraskanir.