Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafnið, Barnamenningarhátíð Reykjavíkur og Reykjavík, Bókmenntaborg UNESCO, taka öll þátt í dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands á næsta ári. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu í vikunni en þá voru veittir styrkir til 100 verkefna víða um land sem verða á dagskrá aldarafmælis ársins.
Verkefni Reykjavíkurborgar eru af ýmsum toga. Listasafn Reykjavíkur mun beina sjónum að verðmætamati Íslendinga, þegar litið er til lands og náttúru, með sýningu á verkum íslenskra listamanna allt frá upphafi 20. aldar. Sýningin mun heita: Og fegurðin ein mun ríkja. Listasafnið mun einnig setja upp sýningu á verkum danskra samtímalistamanna sem bera mun heitið: Tak i lige måde.
Á Árbæjarsafni verður útbúin leikræn leiðsögn undir heitinu Á sunnudögum er töluð danska og munu gestir hitta fyrir fulltrúa fullveldissinna og konungssinna. Á vegum Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur munu listamenn vinna með skólabörnum að því að semja rapplag um Ísland og leiðina til fullveldis og hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur verða sýndar myndir frá fullveldisárinu. Þá mun Bókmenntaborgin Reykjavík standa fyrir ritsmiðjum fyrir ungt fólk um allt land með þemanu fullveldi og sýna afraksturinn á Lestrarhátíð Reykjavíkur haustið 2018.
Sérstök afmælisnefnd, sem skipuð var samkvæmt þingsályktun, heldur utan um afmælisárið og ákvað að fara þá leið að leita til landsmanna um mótun dagskrár afmælisársins. Alls bárust 169 tillögur og verða rúmlega 280 milljónir króna settar í verkefnin.
Í umsögn afmælisnefndarinnar segir um þau 100 verkefni sem fyrir valinu urðu að þau beri með sér hugmyndaauðgi og gefi auk þess mynd af öflugu menningar- og atvinnulífi í landinu. „Verkefnin spanna allt litrófið; þau eru stór og umfangsmikil eða minni um sig, en öll styrkja þau ímynd þjóðarinnar sem sjálfstæðrar og fullvalda þjóðar í samfélagi þjóðanna,“ segir í tilkynningu frá afmælisnefndinni.
Heimasíða: www.fullveldi1918.is