Reykjavíkurborg gestaborg á La Mercé hátíðinni í Barcelona

Mannlíf Menning og listir

""

Ada Colau Ballano, borgarstjóri Barcelona, sendi Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, boðsbréf á dögunum þar sem hún býður Reykjavík að vera gestaborg á árlegri menningarhátíð borgarinnar La Mercé.

Í boðsbréfinu segir að Reykjavík og Barcelona séu borgir sem hafa í gegnum tíðina byggt upp ásýnd sína í gegnum menningu og sköpunargleði. Báðar borgir eru Bókmenntaborgir UNESCO og standa sameiginlega að menningarviðburðum eins og tónlistarhátíðinni Sónar Festival. Að auki hafa báðar borgir unnið að því að efla lýðræði og félagslegt réttlæti.

Hátíðin er skipulögð af borgarstjórn Barcelona og er einn stærsti menningarviðburður borgarinnar. Hún er haldin dagana 22. – 25. september 2017. Þúsundir gesta sækja borgina heim til að taka þátt í hátíðahöldunum þar sem menning og listir eru í fyrirrúmi. Fjöldi listamanna koma að dagskránni þar sem kennir ýmissa grasa, tónlist, sirkusatriði, dans og götulist. Umgjörðin eru sögufrægir staðir í Barcelona auk þess sem hátíðin teygir anga sín út í hin ýmsu hverfi með þátttöku borgarbúa.

Frá árinu 2007 hefur einni gestaborg verið boðið að taka þátt í hátíðinni með það í huga að kynna menningu og listir frá öðrum löndum og um leið að efla samstarf og vináttubönd milli borganna. Gestaborgir á La Mercé hafa verið m.a. París (2016), Buenos Aires (2015) og Stokkhólmur(2014) auk fleiri borgar. Allar þessar borgir hafa vakið athygli meðal gesta og sett ákveðinn blæ á hátíðahöldin ár hvert.

Borgarstjóri hefur þegið boðið og mun menningar- og ferðamálasvið sjá um skipulagningu á aðkomu Reykjavíkur í Barcelona í haust.

Sjá nánar um menningarhátíðina La Mercé