Börn af þremur leikskólum opnuðu í dag glæsilega myndlistarsýningu í Tjarnarsal Ráðhússins undir fyrirsögninni Reykjavík - borgin okkar.
Á sýningunni má sjá nokkrar kirkjur borgarinnar, eins og Hallgrímskirkju og Háteigskirkju, einnig skip, fljúgandi furðuverur og margt fleira. Markmið þessa samstarfsverkefnis leikskólanna Dalskóla, Klambra og Sæborgar er að tengja saman hverfi borgarinnar og gefa börnunum tækifæri til að rannsaka og kynnast borginni á nýjan hátt. Einnig að fá innsýn inn í hvernig börnin upplifa borgina. Börnin hafa unnið verkefnin sem landkönnuðir og rannsakað staði og fyrirbæri í borginni.Þau sýndu kirkjum, ræsislokum, kirkjugörum, strætisvörnum, flugvélum og vatninu í borginni sérstaka athygli eins og sjá má í myndverkum þeirra sem verða til sýnis í Ráðhúsinu fram til loka Barnamenningarhátíð.
Missið ekki af sprúðlandi barnalist í Ráðhúsinu.