Luxury Travel Guide (LTG) hefur valið Reykjavík sem besta vetraráfangastað Evrópu árið 2017. Verðlaunin hljóta bestu hótel og gististaðir í Evrópu en valið byggist á nýbreytni, hönnun, aðstöðu, gæðum í matargerð, framúrskarandi þjónustu, tækninotkun, sjálfbærri þróun, markaðssetningu og staðsetningu áfangastaðarins. Verðlaunin verða afhent formlega í London mánudaginn 6. nóvember.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að borgin bjóði uppá fjölbreytta og áhugaverða afþreyingarmöguleika yfir vetrartímann og sé full af spennandi stöðum að heimsækja. Þar sé hægt að njóta afþreyingar eins og hvalaskoðunar, norðurljósaferða, hjólreiðaferða og einfaldlega stórbrotinnar náttúru. Reykjavík sé hvort í senn uppspretta ævintýra og einstakra minninga og tilvalið sé að heimsækja borgina með fjölskyldu og vinum. Þar sé veitt framúrskarandi þjónusta þegar kemur að því að búa til ógleymanleg ferð, skipuleggja VIP ferðir eða að finna góða gististaði.
James Drakeford aðalritstjóri Luxury Travel Guide segir m.a. um sigurinn: „Það kemur okkur ekki á óvart að Reykjavík hljóti titilinn vetraráfangastaður ársins 2017. Borgin er m.a. fræg fyrir norðurljósadýrð sína og falleg vetrarkvöld. Höfuðborgarstofa/ Visit Reykjavík stóð uppúr þegar kom að því að veita gestum hvaðanæva að heiminum bestu ferðaupplifunina og þegar kom að því að búa til nýjar og frumlegar leiðir fyrir gestinn til að kynnast borginni. “
Í dómnefndinni voru m.a. sjónvarpsfólkið Anthony Melchiorri (Hotel Impossible, Five Star Secrets) og Shane Green (Resort Rescue), lúxus-ferðaljósmyndarinn Antonio Cuellar og hópur frá Luxury Travel Guide.
Um útgáfuna Luxury Travel Guide
Luxury Travel Guide sérhæfir sig í að veita upplýsingar fyrir hóp efnaðra ferðamanna. Útgáfan leggur metnað sinn í að vera helsta upplýsingaveita frétta, umsagna og greina um ferðamennsku fyrir lesendur sína á heimsvísu. Þá veitir útgáfan upplýsingar um m.a. áfangastaði, hótel, heilsulindir, afþreyingu og tækni.