Opnað hefur verið fyrir opið samráðs um menntastefnu Reykjavíkur fram til ársins 2030 á samráðsvefnum Betri Reykjavík.
Leitað verður eftir hugmyndum allra borgarbúa að aðgerðum til að framfylgja meginniðurstöðum úr fyrri hluta víðtæks samráðs um stefnumótunina sem fram fór á vormisserinu meðal barna, foreldra, starfsfólks og á samráðsvefnum Betri Reykjavík. Að loknu því yfirgripsmikla samráði, sem náði til hátt í tíu þúsund manns, varð að niðurstöðu að leggja bæri megináherslu á fimm hæfniþætti í formlegri og óformlegri menntun barna og ungmenna í borginni; félagsfærni, sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði.
Í síðari hluta samráðsins sem standa mun allan nóvembermánuð verður leitað eftir hugmyndum að aðgerðum svo setja megi saman aðgerðaráætlun er snýr að starfsfólki, starfsstöðum og Reykjavíkurborg sem heild. Efnt verður til funda með stjórnendum og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva, skólaþjónustu, börnum og foreldrum. Jafnframt er öllum borgarbúum boðið til rafræns samráðs um stefnumótunina á Betri Reykjavík (www.betrireykjavik.is)
Þar verður spurt um aðgerðir eða hvernig koma megin fimm áhersluþáttunum stefnunnar í framkvæmd:
Félagshæfni: Hvernig má vinna að því í skóla- og frístundastarfinu að öll börn sýni samfélagslega ábyrgð og virkni?
Sjálfsefling: Hvernig má vinna að því í skóla- og frístundastarfinu að öll börn öðlist sterka sjálfsmynd og trú á eigin getu?
Læsi: Hvernig má vinna að því í skóla- og frístundastarfinu að öll börn öðlist skilning á samfélagi og umhverfi?
Sköpun: Hvernig má vinna að því í skóla- og frístundastarfi að öll börn beiti skapandi hugsun?
Heilbrigði: Hvernig má vinna að því í skóla- og frístundastarfi að öll börn tileinki sér heilbrigðan lífsstíl og líði vel?
Þetta er í fyrsta sinn að efnt er svo víðtæks samráðs um stefnumótun á vegum Reykjavíkurborgar og eru allir borgarbúar hvattir til að leggja fram hugmyndir sínar að því hvernig hrinda megi í framkvæmd þeim áhersluþáttum í nýrri menntastefnu sem komnir eru fram.
Takið þátt í rafrænu samráði um menntastefnu Reykjavíkur.