Nemendur hafa þessa vikuna verið að vinna með ákvæði Barnasáttmálans með þemanu „ Allir eru einstakir“ og öll börn eiga rétt á nafni. Börnin skoðuð hve margir heita nafninu þeirra, hvað það þýðir, hvers vegna það nafn varð fyrir valinu og svo framvegis. Í ljós kom að töluverður fjöldi barna í Laugarnesskóla á engar nöfnur eða nafna á landinu, en aðrir eiga fjölmarga.
Laugarnesskóli stefnir að því að verða Réttindaskóli Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (Unicef) þar sem markvisst er unnið með ákvæði Barnasáttmálans. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Með verkefninu er skapaður rammi utan um þau markmið sem koma fram í aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, jafnrétti og lýðræði.