Nýr leikskólastjóri í Langholti

Skóli og frístund

""

Valborg Hlín Guðlaugsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í leikskólanum Langholti í Laugardal. 

Valborg Hlín Guðlaugsdóttir hefur mikla reynslu sem stjórnandi hjá Reykjavíkurborg. Hún lauk B.Ed. prófi í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands 1998 og meistaraprófi í fjölskyldumeðferð frá HÍ 2012. Valborg hefur starfað sem leikskólakennari og deildarstjóri en lengst af sem leikskólastjóri í Engjaborg, eða í 16 ár og hefur því víðtæka stjórnunarreynslu. 

Fjórir sóttu um stöðu leikskólastjóra í Langholti en umsóknarfrestur rann út 17. apríl sl.