Mistök við innheimtu vegna kerfisvillu

Skóli og frístund

""

Vegna tæknilegra mistaka fengu margir foreldrar nýverið innheimtubréf vegna vangoldinna leikskólagjalda.

Kerfisvilla olli því að greiðslur leikskólakrafna skiluðu sér ekki til bókunar í bókhaldinu. Þessi villa hefur nú verið löguð 

og geta allir þeir sem voru búnir að greiða leikskólagjöldin hundsað þetta innheimtubréf.

Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.