Samkvæmt síðustu könnun meðal stjórnenda hjá skóla- og frístundasviði er enn óráðið í 83,5 stöðugildi í leikskólum, 17 stöðugildi í grunnskólum, þar af eitt fyrir kennara, og 55,5 stöðugildi í frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum og eru það flest 50% störf.
Af þeim 83,5 stöðugildum sem ómönnuð eru í 64 leikskólum borgarinnar vantar 3 deildarstjóra, 51 leikskólakennara, 14 stuðningsfulltrúa og 15 aðra starfsmenn. 27 leikskólar borgarinnar eru fullmannaðir eða 43% þeirra. Í 24 leikskóla vantar 1-3 starfsmenn, í 10 leikskóla vantar 3-4 starfsmenn og tvo leikskóla vantar allt að fimm starfsmenn.
Í 36 grunnskóla borgarinnar vantar einn kennara, 11 stuðningsfulltrúa, 3 skólaliða og 2 starfsmenn í mötuneyti.
Í frístundaheimili/sértækar félagsmiðstöðvar vantar 111 starfsmenn í 55,5 stöðugildi, þar af 10 með fötluðum börnum og ungmennum eða 20 starfsmenn. 7 frístundaheimili af 38 eru fullmönnuð eða 16% þeirra, 31 frístundaheimili eiga enn eftir að manna allt að þrjár stöður, 3 frístundaheimili vantar allt að 5 starfsmenn og 2 frístundaheimili/sértækar félagsmiðstöðvar vantar fólk í 5-6 hálfar stöður.
25. september 2017 hafði verið sótt um dvöl á frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum fyrir 4.449 börn. Af þeim eru 3.976 komin með vistun og njóta börn með sérþarfir og yngstu börnin forgangs. Önnur eru tekin inn í samræmi við umsóknartíma. Í sértæku félagsmiðstöðvunum Guluhlíð og Öskju eru öll börn komin með hlutavistun þ.e. öll með 4 daga og sum 5 daga vistun. Á tveimur frístundaheimilum eru nokkur börn komin með hlutavistun. Á biðlista eru 442 börn.
Sambærileg staða og á sama tíma í fyrra í grunnskólum og frístund
Þann 28. september 2016 voru tölur um ráðningar fyrir leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili teknar saman og var þá ómannað í um 50,8 stöðugildi í leikskólunum, 15,15 stöðugildi grunnskólum og 51 stöðugildi í frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum eða um 108 starfsmenn í hlutastörf.
Ráðningar standa yfir þessa dagana og tölurnar því að breytast dag frá degi.