Í vetur taka rúmlega 500 kennarar í 17 grunnskólum í Reykjavík þátt í þróunarverkefni sem miðar að því að efla leiðsagnarmat.
Þetta þróunarverkefni samræmist áherslum aðalnámskrár grunnskóla, en þar segir: Leggja skal áherslu á leiðsagnarmat þar sem nemendur velta reglulega fyrir sér námi sínu með kennurum sínum til að nálgast eigin markmið í náminu og ákveða hvert skuli stefna. Nemendum þarf að vera ljóst hvaða viðmið eru lögð til grundvallar í matinu (bls. 28).
Erlendar rannsóknir sýna að leiðsagnarmat, sem margir kjósa að nefna leiðsagnarnám eða nám með leiðsögn, bætir námsárangur og gerir nám barna og ungmenna merkingarbærara. Þar sem kennarar styðjast við leiðsagnarmat/nám er áherslan á nám sérhvers nemenda fremur en á kennsluna.
Leiðsagnarmat er kennurum ekki framandi því flestir hafa að einhverju leyti nýtt það í starfi sínu. Það sem er nýjung í þróunarverkefninu er að stuðst við aðferðafræði Shirley Clarke en hún er höfundur bóka um leiðsagnarmat sem margir breskir skólar hafa byggt starf sitt á með góðum árangri. Aðferðafræðina hefur Clarke þróað á grunni virtra rannsókna og í nánu samstarfi við starfandi grunnskólakennara. Hugmyndafræði og áherslur Carol Dweck um „mindset“ eða áhrifa hugarfars á námsáragur eru flettuð inn í þróunarverkefnið, en Dweck leggur einnig áherslu á að kennarar séu meðvitaðir um áhrif mismunandi endurgjafar á nemendur og á mikilvægi þess að óttast ekki mistök, heldur læra af þeim.
Hver og einn skóli setur sér eigin markmið með þróunarverkefninu en innleiðingarteymi skólans leiðir verkefnið með stuðningi frá umsjónarmönnum verkefnisins, auk þess hafa innleiðingarteymin aðgang að sérhönnuðum verkefnum og fræðslu á vef þróunarverkefnisins. Rík áhersla er lögð á sjálfsrýni þátttakenda og þróunarstarf með nemendum. Kennararnir 500 taka þátt í nokkrum fræðslufundum á vegum umsjónarmannanna og annarra sérfræðinga auk þess sem Shriley Clarke verður með hálfs dags námskeið fyrir þá í mars.
Umsjónarmenn þróunarverkefnis um leiðsagnarmat í grunnskólum Reykjavíkur eru Edda G. Kjartansdóttir, aðstoðarskólastjóri og Nanna K. Christiansen verkefnastóri SFS. Verkefnið er styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla