Innköllun á Steak Spice kryddi frá Anna and Claras

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Innköllun á Steak Spice kryddi frá Anna and Claras vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda.

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Innköllun á Steak Spice kryddi frá Anna and Claras vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (sellerí og hnetur).

Ofnæmis- og óþolsvaldarnir sellerí og hnetur eru ómerktir á umbúðum vörunnar og er því um að ræða matvæli sem geta valdið neytendum heilsutjóni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Anna and Claras

Vöruheiti: Steak Spice

Strikanúmer: 5711812000403

Best fyrir: Allar dagsetningar

Nettómagn: 70 g.

Innflytjandi: Kiosk, Drápuhlíð 44, 105 Reykjavík

Dreifing: Verslanir Söstrene Grene í Kringlunni og Smáralind.

Þeir neytendur sem eiga umræddar vöru og eru með ofnæmi fyrir sellerí eða hnetum eru beðnir að neyta hennar ekki og farga henni eða skila til Söstrene Grene gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar fást hjá Söstrene Grene í síma 698 9212 eða í gegnum netfangið kiosk@simnet.is