Heimshorna á milli í Grasagarðinum

Mannlíf

""

Sunnudaginn 1. október verður gengið heimshorna á milli en þó bara í Grasagarði Reykjavíkur.

Í Grasagarðinum er nýlegt trjásafn sem raðað er í eftir upprunalandi tegundarinnar. Í göngunni verður því gengið heimsálfa á milli og spjallað um hinn fjölbreytta gróður sem þrífst í garðinum.

Þá munu garðyrkjufræðingar Grasagarðsins fjalla um hvenær og hvernig á að klippa tré, gróðursetningu og almenna umhirðu trjágróðurs.

Fræðslan hefst við aðalinngang Grasagarðs Reykjavíkur kl. 13 sunnudaginn 1. október.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!