Grunnskólarnir nær fullmannaðir

Skóli og frístund

""

Samkvæmt vikulegu yfirliti yfir stöðu ráðninga í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi í borginni er enn  óráðið í um 100 stöðugildi í leikskólunum, 14 í grunnskólunum og 125 í frístundastarfinu. 

Í 64 leikskóla borgarinnar vantar 11 deildarstjóra, 55 leikskólakennara og 21 stuðningsfulltrúa. Í liðinni viku var ráðið í 11 stöðugildi leikskólakennara og fjórar fyrir stuðningsfulltrúa. 

Í 36 grunnskóla borgarinnar vantar enn 6 kennara, 3 stuðningsfulltrúa, 3 skólaliða og 1 starfsmann í mötuneyti. Í liðinni viku voru tveir kennarar ráðnir, 7 stuðningsfulltrúar og 3 skólaliðar.

Í frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum vantar 212 starfsmenn í hálft starf, þar af 62 í störf með fötluðum börnum og ungmennum. 

Alls hefur verið sótt um dvöl á frístundaheimili og í sértækum félagsmiðstöðvum fyrir 4.505 börn og fjölgaði umsóknum um 250 á milli vikna. 3.158 börn eru komin í þjónustu. 584 börn voru í liðinni viku tekin inn til viðbótar við þau sem fyrir voru komin í þjónustu og njóta börn með sérþarfir og yngstu skólabörnin forgangs. Önnur eru tekin inn í samræmi við umsóknartíma.

Á sama tíma í fyrrahaust átti eftir að ráða í tæp 75 stöðugildi í leikskólum, tæp 19 stöðugildi í grunnskólum og tæp 90 stöðugildi í frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum. 

Sjá laus störf hjá skóla- og frístundasviði.