Gröndalshús opnað á þjóðhátíðardaginn

Menning og listir

""

Gröndalshús verður opnað almenningi á þjóðhátíðardegi  Íslendinga, 17.  júní næstkomandi. Húsið hefur verið gert upp og verður það rekið sem menningarhús í  í Grjótaþorpinu,  í minningu Benedikts Gröndals skálds og fræðimanns.

Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson,  mun opna húsið formlega föstudaginn 16. júní kl. 16.00 að viðstöddum fjölmiðlum en á laugardaginn verður það opið  almenningi.

Sunnudaginn 18. júní kl. 15.00 og 16.00 mun Ragnheiður Gröndal flytja nokkur lög í Gröndalshúsi og Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur,  fjalla um skáldið Benedikt Gröndal og verk hans.

Húsið sem stóð upprunalega við Vesturgötu 16a stendur nú á horni Fishersunds og Mjóstrætis. 

Í húsinu verður minning  skáldsins Benedikt Gröndal heiðruð og ævi hans og verk verða kynnt.  Benedikt bjó í húsinu, ásamt dóttur sinni Helgu og tveimur vinnukonum,  í tuttugu ár eða þar til hann lést árið 1907. Þarna vann hann sín helstu verk eins og Dýraríki Íslands og Fuglabókina. Einnig er talið að Benedikt hafi skrifað sjálfsævisögu sína Dægradvöl í húsinu og ritgerðina Reykjavík um aldarmótin 1900.

Vinnuaðstaða fyrir rithöfunda, fræðimenn og þýðendur verður í risi hússins og í kjallaranum er skáldaíbúð þar sem Bókmenntaborgin Reykjavík mun bjóða erlendum listamönnum að dvelja  til skemmri tíma til að kynnast íslenskri menningu, landi og þjóð.

Frítt er inn í Gröndalshús opnunarhelgina en eftir það verður  aðgangseyrir þúsund krónur og opnunartími er frá 13-17 fimmtudaga til sunnudaga.  Arkitektinn Hjörleifur Stefánsson teiknaði endurgerð hússins en Minjavernd hafði umsjón með endurbótunum.

Reykjavikurborg á Gröndalshús og verður það á forræði Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. Icelandair Group styður Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO við að opna Gröndalshús fyrir almenningi.

Sýningarhönnuðir í húsinu eru Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir. Margmiðlunarsýningu hönnuðu Phoebe Jenkins og Ben Moody. Textagerð var í höndum Guðmundar Andra Thorssonar.  Sýningarstjórar í húsinu eru Kristín Viðarsdóttir og Lára Aðalsteinsdóttir.