Í árlegri stærðfræðiskimun í 3. bekk í grunnskólum Reykjavíkur náðu tæplega 95% þeim árangri að ólíklegt er að þau þurfi á sérstökum stuðningi að halda í stærðfræði.
Þetta eru meginniðurstöður úr könnun sem gerð var á haustdögum með það að markmiði að finna þá nemendur sem eru líklegir til að lenda í vanda í stærðfræðináminu.
Skimunarprófið Talnalykill fer fram í þremur þrepum. Nái nemendur tilsettum árangri í þrepi I þurfa þeir ekki að halda áfram en aðrir halda áfram í þrep II. Nái nemendur þar tilsettum árangri þurfa þeir ekki að halda áfram en aðrir halda áfram í þrep III. Eftir fyrirlögnina í þrepi III eru niðurstöður hvers og eins úr þeim hópi lagðar saman úr öllum þrepunum þremur og segir niðurstaðan um hvort tiltekinn nemandi sé líklegur til að þurfa á sérstökum stuðningi að halda í stærðfræði eða ekki.
Niðurstöðurnar haustið sýna að 73% nemenda náðu settu viðmiði í þrepi I og um 18% nemenda náðu settu viðmiði í þrepi II. Um 9% nemendahópsins þurfti að fara í gegnum þrep III og miðað við niðurstöður skimunarinnar þarf rúmlega helmingur þess hóps líklega á sérstökum stuðningi að halda í stærðfræði. Þessi hópur jafngildir 5,2% af öllum nemendahópnum sem tók þátt í skimuninni. Hlutfallið er það lægsta síðan árið 2012 og þriðja lægsta hlutfall í sögu skimunarinnar.
Hlutfallslega þurfa 5,4% stúlkna stuðning í stærðfræði og 5,1% drengja. Mismunandi er eftir skólum hve margir nemenda eru líklegir til að þurfa stuðning í stærðfræði, allt frá engum nemanda upp í 20%.
Tæp 96% nemenda í 3. bekk í Reykjavík tóku þátt í stærðfræðiskimuninni 2016 og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Niðurstöður úr stærðfræðiskimun í 3.bekk í grunnskólum Reykjavíkur