Gjaldfrjáls frístund fyrir börn með annað móðurmál en íslensku

Skóli og frístund

""

Foreldrar barna með annað móðurmál en íslensku fá áfram frístundastarfið gjaldfrjálst í þrjá mánuði. 

Framhald verður á því fyrirkomulagi sem innleitt var á liðnu skólaári í borginni, að bjóða börnum með annað móðurmál en íslensku og eru að hefja skólagöngu á Íslandi, gjaldfrjálst frístundastarf  fyrstu þrjá mánuðina. Skóla- og frístundaráð samþykkti þetta á fundi sínum í dag. Meginröksemdin fyrir þessu fyrirkomulagi er sú að í frístundastarfinu gefst gott tækifæri til að vinna með félagslega tungumálið og efla þátttöku tví- og margtyngdra barna í íslenskri barnamenningu.

Á liðnu skólaári var ráðstafað 2,5 mkr. til þess að veita tímabundið slíka undanþágu frá gjöldum fyrir dvöl á frístundaheimili og gilti það fyrirkomulag fyrir börn í 1.- 4. bekk grunnskólans sem höfðu flutt til landsins á árinu 2016. Alls fengu 43 börn gjaldfrjálsa dvöl á frístundaheimili á tímabilinu nóvember 2016 til júní 2017. Þorri þeirra, eða 36 börn, voru áfram í frístundastarfinu eftir að gjaldfrjálsa tímabilinu lauk. Gert er ráð fyrir því að um 70 börn fái tilboð um gjaldfrjálsa dvöl á frístundaheimili og að kostnaður verði um 3,5 mkr. á ári. 

Mikil ánægja hefur verið með þetta verkefni meðal stjórnenda í skólum og frístundastarfi og þykir það  styðja við þátttöku tvítyngdra barna í skipulögðu frístundastarfi og lengja viðveru þeirra í íslensku málumhverfi.   

Starfsfólk frístundaheimila fær afslátt af gjöldum

Skóla- og frístundaráð samþykkti einnig á fundi sínum í dag að veita starfsfólki frístundaheimila sem eiga börn á frístundaheimilum borgarinnar afslátt af vistunargjaldi. Starfsmenn sem starfa að minnsta kosti 3 daga í frístundaheimili á viku munu fá 59% afslátt af vistunargjaldi. Markmiðið er að bæta starfsumhverfi og gera störf á vettvangi frítímans eftirsóknarverðari. Gjald vegna fimm daga vist á frístundaheimili er í dag 13.060 kr. á mánuði en verður 5.355 kr. fyrir starfsfólk frístundaheimilanna. Kostnaður borgarinnar vegna þessa starfsmannafsláttar verður um 1,8 milljónir á ári miðað við að 25 starfmenn frístundaheimila nýti sér hann.