Framkvæmdir hefjast við lagfæringar á Birkimel nú í október en til stendur að leggja nýjan göngu- og hjólastíg vestan megin götunnar, auk þess sem lýsing verður endurnýjuð.
Samið hefur verið við Bjössa ehf um framkvæmdina við Birkimel en útlit var fyrir að framkvæmdir þar myndu frestast vegna þess að tilboð bárust ekki í verkið þegar það var boðið út í vor.
Hugmynd frá íbúa um að endurnýja gangstétt og gera hjólastíg við Birkimel kom fram í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Hugmyndin var kosin til framkvæmda í íbúakosningum og átti að kosta tíu milljónir.
Umhverfis- og skipulagsráð ákvað í framhaldinu að ráðast í endurnýjun á lýsingu við götuna og leggja göngu- og hjólaleið vestan megin götunnar.
Eftir framkvæmdir munu allir hafa nóg pláss við götuna, gangandi, hjólandi og akandi auk þess sem öryggi vegfarenda batnar.
Það sem verður framkvæmt við Birkimel á næstunni
• Fjögurra metra breiður göngu- og hjólastígur lagður vestan megin götunnar á milli Hringbrautar og Hagatorgs.
• Núverandi gangstétt breikkuð í átt að lóðarmörkum til að gera pláss fyrir stíginn.
• Mismunur í hæðarlegu við lóðar mörk leystur með stoðveggjum þar sem þörf er á.
• Tengingar við núverandi gangstétt verða að mestu óbreyttar, ýmist leystar með rampi eða þrepum.
• Staðsetningu á innkeyrslu að bílastæði frá Birkimel verður óbreytt en vegna hæðarlegu þarf að gera ramp inn á bílastæðið.
• Hæðarlega á einu til tveimur bílastæðum verður aðlöguð vegna nálægðar við rampa í innkeyrslu.
• Núverandi ljósastaurum skipt út fyrir nýja sem eftir breytingu verða staðsettir í bakkanti gangstéttar.
• Gert er ráð fyrir að gatan verði óbreytt að mestu en þrengingum verður komið fyrir í götunni við biðstöðvar til að auka öryggi og bæta aðstöðu fyrir farþega Strætó.
• Hámarkshraði verður lækkaður úr 50 km/klst í 30 km/klst.