Forsetinn setti frístundahreysti Guluhlíðar

Skóli og frístund

""

Guðni Th. Jóhannesson forseti heiðraði börnin í Guluhlíð og Öskju með nærveru sinni í dag þegar hann kom og setti leika í Frístundahreysti sem haldnir voru í annað sinn í Laugardalshöllinni. 

Mikill hugur var í börnunum sem hafa undirbúið sig vel fyrir frístundahreystina sem eru íþróttaleikar þar sem allir eru sigurvegarar. Keppnin er sniðin að þörfum barna með sérþarfir og fara allir þrautahring með margvíslegum hreyfiþrautum á sama hátt og í Skólahreysti grunnskólanna. Frístundahreystin skiptist upp eftir aldri, börnin í 1.-4. bekk í Guluhlíð fóru sinn hring og eldri börnin sem stunda nám í Klettaskóla og eru í frístundastarfi í Öskju fóru í annan þrautahring. 

Þetta skemmtilega verkefni er unnið í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra með sérstökum styrk frá Kyndilhlaupi lögreglunnar. Fulltrúar lögreglunnar mættu á leikana með logandi kyndil og veittu keppendum margvíslega aðstoð. Þá var bæði sungið og dansað, enda skiptir mestu að skemmta sér samhliða góðri hreyfingu. 

Að leikum loknum fengu allir verðlaunapening og góðar veitingar.