Fjárstyrkur á vegum Hverfisráðs Hlíða
Búið er að opna fyrir fjárstyrk á vegum Hverfisráðs Hlíða. Umsóknarfrestur er til 18. apríl n.k. og eiga umsóknir að berast til Harðar verkefnastjóra á Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið: hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
1. Markmið með styrkjum Hverfsráðs er að styrkja og stuðla að ýmsum
verkefnum og uppákomum í Hlíðahverf í Reykjavíkur.
2. Hverfsráðið ákveður í sameiningu hvort viðkomandi umsækjandi
fái þann styrk sem sótt er um.
3. Árleg framlög eru að hámarki 500.000 kr. en úthlutað verður
úr sjóðnum í apríl 2017 n.k.
4. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 18. apríl. til verkefnisstjóra
Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið:
hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
5. Umsóknir eru metnar með hliðsjón af:
a) markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
b) hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
c) hvort unnt sé að meta framvindu verksins
6. Greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út í einni greiðslu til þeirra aðila
sem hljóta styrk úr sjóðnum.
7. Þeir aðilar sem fá úthlutað styrk skulu skila skýrslu um framvindu
verkefnisins til verkefnastjóra Þjóntumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar
og Hlíða í síðasta lagi ári eftir að styrkurinn er greiddur.
8. Hverfsráð getur óskað eftir því við styrkþega að þeir kynni verkefni sín,
en ráðið metur hvort þörf er á því hverju sinni.
Reykjavíkurborg
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða