Fengu viðurkenningu fyrir að styrkja jafnaldra sína í þriðja heiminum
Mannlíf Skóli og frístund
Börn á frístundaheimilum Tjarnarinnar fengu á dögunum viðurkenningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir framlag sitt til hjálparstarfs.
Börnin í frístundaheimilum Tjarnarinnar fengu á dögunum viðurkenningarskjal frá Unicef fyrir fjársöfnun á jólamarkaði í desember, en fyrir ágóðann gáfu þau "sannar gjafir" fyrir nær 350.000 kr. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að margur er knár þó hann sé smár. Börn á sjö frístundaheimilum ráðstöfuðu ágóðanum af jólamarkaðinum og réðu þau á hverjum stað hvað skyldi kaupa fyrir hann. Eftir lýðræðislega samræðu og vangaveltur um hvað myndi gagnast bágstöddum börnum best völdu þau að kaupa eftirfarandi varning til að bæta líf barna sem eru ekki jafn lánsöm og þau sjálf:
- Hlý teppi fyrir 58 börn
- Fjórar vatnsdælur
- 150 skammta af mænusóttarbóluefni
- 800 töflur af ormalyfi
- Ungbarnavernd
- Moskítónet fyrir 10 börn
- 80 skammta af mislingabóluefni
- Næringarmjólk
- Námsgögn fyrir 40 börn
- 480 poka af jarðhnetumauki
- 2 kælibox
- Ofurhetjupakka
Með þessu rausnarlega framlagi hafa börnin ekki bara sýnt frábært fordæmi heldur líka hvers börn geta verið megnug fái þau til þess réttan stuðning og hvatningu.