Miðvikudaginn 8. nóvember er árlegur dagur gegn einelti og kynferðisofbeldi í öllum aldurshópum.
Einelti er ámælisverð og síendurtekin hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga , særa, mismuna eða ógna þeim sem hegðunin beinist að. Því miður verða allt of mörg börn og fullorðnir fyrir einelti sem veldur þeim vanlíðan og skaða. Í dag er minnt á að vinna þarf gegn einelti og öðru ofbeldi alla daga.
Í dag verður alls konar bjöllum hringt í 7. mín. 1. mín fyrir hvern dag vikunnar kl. 13:00 að staðartíma til að minna okkur á að sýna samstöðu í baráttunni gegn einelti.
Á vef skóla- og frístundasviðs er sérstakur vefur VINSAMLEGT SAMFÉLAG þar sem er að finna margvíslega fræðslu og verkefni í tengslum við forvarnir gegn einelti
Sjá einnig myndbönd um einelti frá 2014 og 2015 Um er að ræða samtals 12 stutt myndbönd þar sem nemendur í Reykjavík settu á svið atriði um óæskileg samskipti sem tilvalið er að horfa á með börnum og ræða.