Breið Borgarsýn
Borgarsýn er kynningarrit umhverfis- og skipulagssviðs.Tilgangurinn með útgáfunni er fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem efst eru á baugi umhverfis- og skipulagsmála hverju sinni og segja frá framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar.
Hvað eiga Sléttuvegur 11-13 og Þúfan sameiginlegt? Í nýrri Borgarsýn fæst svar við því ásamt umfjöllun um ánægjumælingar á þjónustu sveitarfélaga, hverjir fengu samgönguviðurkenningu borgarinnar í ár, Stjörnuver í Perlunni, Hverfið mitt og Hlemm, sem hýsir nú líflegan veitinga- og matarmarkað. Þetta og margt fleira í októberhefti Borgarsýnar.