Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, heimsótti í gær Kjalarnes. Tilefnið var kynningarfundur á hverfaskipulagi Kjalarness.
Borgarstjóri byrjaði daginn með heimsókn í Klébergsskóla, sameinaðan leikskóla, grunnskóla og frístundastarf þar sem hann heilsaði upp á starfsfólk og börn. Þar kom m.a. fram að náttúran og sjálfbærni skipar stóran sess í skólastarfinu og einnig að Klébergsskóli hefur hlotið hvatningarverðlaun fyrir stærðfræðikennslu. Þá hefur skólinn náð langt í skólahreysti og meðal nemenda er fulltrúi í ungmennaráði borgarinnar. Á leikskólanum var tekið vel á móti borgarstjóra og gáfu börnin honum litríkt náttúrumálverk.
Skógræktin á Kjalarnesi var heimsótt og var við það tækifæri undirritaður samningur milli skógræktarinnar og borgarinnar um ræktun yfir 50 hektara landspildu við Esjuna. Það var samdómaálit þeirra sem undirrituðu samninginn að ef vel gengi með skógrækt á Kjalarnesi gæti það haft víðtæk áhrif á vind og veður bæði í hverfinu og í höfuðborginni allri.
Vallárbúið var næsti viðkomustaður borgarstjóra en búið er einn stærsti vinnustaðurinn á Kjalarnesi. Á búinu er bæði hænsna- og svínarækt en hjá Stjörnueggjum, einum anga Vallárbúsins, eru framleidd um 60-70 þúsund egg á dag. Á búinu hafa alltaf starfað margir starfsmenn af erlendum uppruna og margir þeirra löngu orðnir Íslendingar enda starfað á Vallá í yfir 20 ár.
Björtum og fögrum degi borgarstjóra á Kjalarnesi lauk svo með íbúafundi á Fólkvangi. Á fundinum var lögð áhersla á hverfisskipulag Kjalarness og þátttöku íbúa í skipulaginu. Meðal þess sem brann á íbúum Kjalarness voru samgöngur, fjarskipti og hávaðamengun. Margir vildu verslun og bar í hverfið auk þess sem unga fólkið vildi fjölbreyttari leiktæki fyrir alla aldurshópa.