Í barnabókinni Fjölskyldan mín er fjallað um fjölbreyttar fjölskyldur í nútíma samfélagi.
Þriðjudaginn 24. október var barnabókin Fjölskyldan mín afhent börnum á leikskólanum Jörfa en allir leikskólar á landinu munu fá bókina að gjöf.
Ásta Rún Valgerðardóttir, höfundur bókarinnar og Lára Garðarsdóttir myndhöfundur afhentu Bergljótu Jóhannsdóttur, leikskólastjóra og börnunum í Jörfa bókina, en markmiðið með útgáfunni er að fagna þeim fjölbreytileika sem finna má í fjölskyldum nútímans og fræða börn um ólík fjölskylduform í gegnum sögu og umhverfi sem börnin þekkja. Bókin opnar umræðu á milli barna og foreldra um lífið og tilveruna á leikskólanum og heima fyrir.
Fjölskyldan mín segir frá Friðjóni og vinum hans á leikskólanum. Dag einn er haldinn fjölskyldudagur og þá komast krakkarnir að því hversu fjölbreyttar fjölskyldur þeirra eru. Til að mynda á Friðjón tvær mömmur, sumir eiga stjúpforeldra, aðrir tala annað tungumál við foreldra sína og svo mætti lengi telja.
Fjölskyldan mín er fyrsta bók Ástu Rúnar Valgerðardóttur, sálfræðings. Lára Garðarsdóttir, handhafi barnabókaverðlauna IBBY, er höfundur mynda. Efnið er Ástu Rún afar hugleikið en hún er gift konu og þær eiga saman son á leikskólaaldri. Fjölskyldan mín er gefin út af Sölku.