Blústónleikar á Borgarbókasafninu

Menning og listir

""

Líkt og undanfarin ár verður boðið upp á dagskrá í tilefni af Blúshátíð Reykjavíkur í Borgarbókasafninu í Grófinni við Tryggvagötu. Dagskráin er laugardaginn 8. apríl klukkan fjögur og það er ókeypis aðgangur.

Halldóri Bragason heldur tónleika á safninu ásamt hópi valinkunnra eðalblúsara. Þá verður jafnframt dregið úr réttum lausnum þeirra sem mæta á svæðið og tekið hafa þátt í Blúsgetraun Borgarbókasafnsins og Blúshátíðar. Í verðlaun er miði fyrir tvo á alla stórtónleika Blúshátíðar.

Hitað upp fyrir Blúshátíð

Fyrir þá sem vilja hita upp fyrir blúshátíðina hefur verið stillt út fjölbreyttu úrvali af alls kyns efni tengdu blús. Þar má nú finna vinylplötur, tónlistar- og mynddiska, bækur um  blús og blússögu, blúsævisögur, nótur og kennslubækur í blústónlist.

Á Naxos-tónlistarveitunni er einnig hægt að hlusta á og fræðast um fjöldann allan af blúsurum, m.a.  frumkvöðla blúsins eins og þeir birtast í upptökum Smithsonian Folkways. Í Rafbókasafninu er svo ennfremur hægt að finna bækur um blús, meðal annars nýlega ævisögu blúsarans Slim Harpo. Bæði Naxos-tónlistarveitan og Rafbókasafnið er aðgengileg korthöfum bókasafnsins.