Betri staða í ráðningarmálum

Skóli og frístund

""

Vel hefur gengið að ráða í ómönnuð stöðugildi í leikskólum og frístundaheimilum borgarinnar á síðustu vikum.

Samkvæmt samantekt þann 6. nóvember var óráðið í 57 stöðugildi eða 3,9% stöðugilda allra 62 leikskóla borgarinnar ef miðað er við heildarfjölda stöðugilda í desember 2016. Í byrjun október átti eftir að ráða í 79 stöðugildi eða 5,46%. Full þjónusta er því nálægt í öllum leikskólum. Í 8 leikskólum af 62 vantar enn 3-6 starfsmenn og hefur þar þurft að grípa til takmarkaðrar skerðingar á þjónustu.  

Í grunnskólunum er óráðið í 6 stöðugildi kennara, 11 stöðugildi stuðningsfulltrúa, 2 stöðugildi skólaliða og 2 stöðugildi í mötuneyti. Þetta er um 1,12% stöðugilda í 34 grunnskólum borgarinnar ef miðað er við heildarfjölda stöðugilda í desember 2016.

Rösklega 100 börn bíða eftir að komast inn á frístundaheimili en enn er ómannað í um 40 stöðugildi frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva og er þar um 50% störf að ræða. Þar af vantar 15 starfsmenn í stöðugildi með fötluðum börnum og ungmennum. Á tveimur af 43 frístundaheimilum/sértækum félagsmiðstöðvum er óráðið í 4-5 stöður.  

6. nóvember 2017 hafði verið sótt um dvöl á frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum fyrir 4.376 börn, af þeim eru 4.169 komin með vistun og njóta börn með sérþarfir og yngstu börnin forgangs.