Auglýst eftir umsóknum um þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs

Skóli og frístund

""

Fram til 1. febrúar 2018 er hægt að sækja um þróunarstyrki vegna skólaársins 2018-2019. 

Umsóknir skulu hafa borist skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14 í síðasta lagi 1. febrúar 2018 á þar til gerðum eyðublöðum. 

Þróunarstyrkjum skóla- og frístundaráðs er úthlutað árlega í samræmi við áherslur sem settar eru í stefnu sviðsins. Markmiðið er að styðja við ýmis verkefni sem stuðla að nýjungum, rannsóknum eða nýbreytni í uppeldis- og fagstarfi leikskóla og grunnskóla og í frístundastarfi.

Við úthlutun styrkja fyrir skólaárið 2018-2019 verður sérstaklega horft til verkefna sem miða að því að efla þá hæfniþætti sem fram eru komnir í víðtæku samráði við mótun menntastefnu fyrir Reykjavíkurborg. Niðurstaðan er sú að í skóla- og frístundastarfi borgarinnar skuli á næstu árum leggja megináherslu á:

  • Félagsfærni - sýna samfélagslega ábyrgð og virkni
  • Sjálfseflingu - hafa sterka sjálfsmynd og trú á eigin getu
  • Læsi - skilja samfélag og umhverfi
  • Sköpun - beita skapandi hugsun
  • Heilbrigði - tileinka sér heilbrigðan lífsstíl og líða vel

Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs eru jafnframt hvattir til að sækja um fyrir önnur verkefni en ofangreind áhersluatriði kveða á um til að gera skóla- og frístundastarfið í borginni enn öflugra.

Frekari upplýsingar um reglur og umsóknir veita Guðrún Edda Bentsdóttir, Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir og Soffía Pálsdóttir á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs.

Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar um styrkina eru einnig á heimasíðu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar .

Skila má umsókn með fylgiskjölum á netfangið sfs@reykjavik.is,