Æskan tekur yfir Facebook

Mannlíf Menning og listir

""

Það styttist í þann tíma ársins þegar Barnamenningarhátíð tekur yfir Reykjavík og börnin taka yfir Facebook. Hátíðin hefst á þriðjudaginn 25. apríl og því hvetjum við alla að gefa lífinu lit og setja barna- eða unglingamynd af sér á Facebook og  fram yfir hátíðina sem stendur til sunnudagsins 30. apríl og setja myllumerkið  #barnamenning #barnamenningarhatid

 

Það styttist í þann tíma ársins þegar Barnamenningarhátíð tekur yfir Reykjavík og börnin taka yfir Facebook. Hátíðin hefst á þriðjudaginn 25. apríl og því hvetjum við alla að gefa lífinu lit og setja barna- eða unglingamynd af sér á Facebook og fram yfir hátíðina sem stendur til sunnudagsins 30. apríl og setja myllumerkin  #barnamenning  og #barnamenningarhatid. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur þegar orðið við áskoruninni og sett inn mynd frá æskuárunum.



Facebook hér á landi fylltist af barnamyndum á síðustu Barnamenningarhátíð og í ár er búist við jafn mikilli þátttöku ef ekki meiri. 

Hátíðin í ár verður með afar fjölbreyttu sniði en hægt er að nálgast dagskrá hennar á barnamenningarhatid.is.



Barnamenningarhátíð er skipulögð af Höfuðborgarstofu og verkefnastjóra barnamenningar í Reykjavík. Með hátíðinni skapast vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hátíðin er þátttökuhátíð þar sem gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi eru höfð leiðarljósi.